Domusnova fasteignasala kynnir í sölu: Grænaborg 14 við Grænubyggð í Vogum. Glæsilegt fjölbýlishús með 12 íbúðum. Íbúðirnar eru þriggja, fjögura og fimm herbergja íbúðir allar með sérinngangi og falla mögulega undir hlutdeildarlán HMS.
Fjölbýlishúsið er byggt á vandaðan máta, einangrað og klætt að utan með varanlegri álklæðningu. Arkís sér um hönnun á verkinu og er húsið afar glæsilegt. Stærðir og gerðir íbúða eru eftirfarandi: Íbúð 104, 204 samtals 2 stk þriggja herbergja íbúðir 81,0 fm að stærð. Íbúð 102,103,105,202,203,205 samtals 6 stk fjögurra herbergja íbúðir 92,2 fm að stærð. Íbúð 101,201,106,206 samtals 4 stk fimm herbergja íbúðir 106,2 fm að stærð.Íbúð 01-0101: Eignin er 5 herbergja íbúð á 1. hæð. Birt flatarmál er 106,2 m². Eigninni tilheyrir sérnotareitur á lóð 0107.
Grænabyggð mun rísa í landinu Grænaborg svæði 1 í Vogum. Um er að ræða frábærlega staðsett hverfi sem mun byggjast á næstu árum í fallegu, fjölskylduvænu og rólegu umhverfi við sjávarsíðuna. Hverfið er tengt núverandi byggð og því er stutt í alla helstu þjónustu. Gert er ráð fyrir að Grænabyggð verði um 1500 manna hverfi og er heildarfjöldi íbúða sem áformað er að reisa á landinu um 800 á 10 ára tímabili. Um er að ræða blandaða byggð, með aðaláherslu á lítil sérbýli. Allir innviðir eru þegar til staðar og ráða þeir vel við fyrstu stig uppbyggingarinnar. Leik- og grunnskóli eru í næsta nágrenni og er áformað að reisa bæði nýjan leik – og grunnskóla í hverfinu á næstu árum samhliða stækkun hverfisins. Uppbygging svæðisins er til 10 ára samkvæmt samkomulagi Grænubyggðar ehf. við Sveitarfélagið Voga. Með því að dreifa byggingartíma yfir 10 ár, er tryggt að uppbygging og stækkun gerist í hægum og öruggum skrefum og að nauðsynleg uppbygging innviða geti átt sér stað samhliða. Verkefnið er unnið í góðu samstarfi og samráði við Sveitarfélagið Voga með það að markmiði að byggja fjölskylduvænt hverfi á einstökum stað.
Nánari upplýsingar veitir: Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is
Smelltu hér til að fara á heimasíðu
SKILALÝSING
Almennt:
Arkitekt: Arkís Arkitektar. Burðarþolshönnun: VSR. Lagnahönnun: VSR. Raflagnahönnun: Raflausnir. Hljóðhönnun: Myrra.
Brunahönnun: Mannvit. Lóðahönnun: Landmótun
Grænaborg 6, 10 og 14 eru þrjú sjálfstæð hús alls 36 íbúðir, án bílakjallara eða kjallara. Gert er ráð fyrir 12 íbúðum í hverju húsi. Hjóla, vagna, sorp og inntaksklefar eru sjálfstæð hús. Gert er ráð fyrir 18 bílastæðum á lóð auk 2 bílastæða fyrir fatlaða á lóð samtals 20 stæði á lóð fyrir hvert hús.
Burðarkerfi eru samkvæmt burðarþolsteikningum, staðsteypt hús með sperruþaki. Húsið er allt einangrað að utan með 125 mm steinull og klætt með báruáli. Þök eru sperruþök með steinullar-einangrun klædd að neðan með Clipsódúk. Ytra byrði þaka: Þök verða borðaklædd, og PVC dúkur þar ofan á. Milliveggir eru flestir hlaðnir með sandstein. Í tilfellum þar sem lagnir eru verða gipsveggir með blikkstoðum og tvöföldu gipsi þar sem við á.
Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna, nánari lýsing er á hverjum verkþætti hér á eftir.
Söluverð: Endanlegt kaupverð samkvæmt tilboði þessu tekur breytingum í samræmi við vísitölu byggingakostnaðar. Upphafsgildi byggingarvísitölu í okt 2021. er 157,2, Endanlegt kaupverð miðast við byggingarvísitölu á afhendingardegi. Hækkun/lækkun á kaupverði skal gera upp samhlið afsali.
Fyrirvarar: Aðilar gera fyrirvara um að að eignin fái samþykki hjá HMS skv. skilyrðum hlutdeildarlána.
Frágangur utanhúss:
Gluggar/gler:
Gler er K-gler, 5 ára ábyrgð framleiðanda fylgir. Gluggar verða timbur/ál gluggar settir í eftirá. Opnanleg fög eru með opnunarstillingu til loftunar. Útihurð og svalahurð er timbur/ál, málað að vali arkitekta. Læsingar á hurðum eru hefðbundnar ASSA-læsingar, Euro-cylender eða sambærilegt. Ekki er gert ráð fyrir rafmagnsopnun á hurðir.
Gluggar og gler skulu uppfylla kröfu um hljóð sem gerð er samkvæmt skilmálum, hljóðkortum og hljóðskýrslum hljóðhönnuða.
Þak:
Þak er uppbyggt sem sperruþak, stálbitar munu bera uppi þak í mæni og skotrennum þar sem við á. Einangrað er á milli sperra og gert er ráð fyrir 20-30mm lofunarbili fyrir ofan einangrun, ofaná sperrur er borðaklæðning 22 x 145 mm þétt klædd á milli 3 hvert borð er útbúinn lofunarrifa til að fá þverloftun á milli sperra, ofaná sperrur er heillímdur PVC dúkur, undir PVC dúk er sett filterdúkur. Að innan er loft klædd með Clipsó dúk.
Málmsmíði:
Allt stál utanhúss er heitgalvanhúðað og stál sem krefst brunavarnar er brunamálað eða leyst með öðrum viðurkenndum aðferðum í samráði við brunahönnuð. Svalahandrið boltast framaná svalakant
Svalir:
Handrið verða á öllum svölum, gert er ráð fyrir galv, pílárar handriðum. Svalagólf eru staðsteypt.
Sorpskýli:
Gert er ráð fyrir sorpskýlum á lóð. Skýli verða byggð upp sem lá timburskýli ( sjá hönnun arkitekta ) á steyptri plötu. Útveggir skýla verða klæddir að utan með gegnvörðum timburklæðningum. Þak er trapeza með grasi ofan á
Hjóla og vagnageymslur:
Hjóla og vagnageymslur verða sjálfstæð hús við stiga upp á 2 hæð. Botnplata verður steypt, útveggir verða einangraðir timburveggir klæddir að utan með plötum, þök verða trapeza plötur með grasi ofan á.
Inntaksklefar:
Inntaksklefar verða sjálfstæð hús við stiga upp á 2 hæð. Botnplata verður steypt, útveggir og þak verða einangraðir timburveggir klæddir að utan og innan með plötum.
Útveggir húsa:
Allir veggir eru staðsteyptir og einangraðir að utan með 125mm steinull. Að utan verða veggir klæddir með báruáli. Litir eru í samráði við arkitekt.
Raflagnir:
Ljós verða sett upp við svalir, innganga og á stígum. Dyrabjöllur verða við hverja útihurð.
Frágangur Lóðar:
Frágangur lóðar er í samræmi við lóðahönnun landslagsarkitekts.
Leiktæki: Engin leiktæki eru útveguð eða sett upp á lóð af verktaka.
Hjólagrindur
Hjólagrindum verður komið fyrir á lóð nálægt inngöngum húsa samkvæmt teikningu lóðahönnuðar.
Malbik og merkingar
Göngustígar innan lóðar verði malbikaðir að megninu til en miðjusvæði við innganga hellulagðir.
Bílastæði á lóð eru malbikuð og með máluðum bílastæðamerkingum. Kantsteinar eru steyptir við bílastæði á lóð. Ljósastaurar samkvæmt teikningu.
Merkingar fyrir hreyfihamlaða eru málaðar á malbik eða með merkingu á vegg þar sem við á samkvæmt teikningum arkitekts.
Snjóbræðsla
Snjóbræðsla er að og í bílastæðum hreyfihamlaðra, í aðal aðkomuleiðum að inngöngum samkvæmt teikningum lagnahönnuðs. Reiknað er með að affall húsanna anni þörfinni.
Hellulögn, og skjólveggir sérafnotareita
Hellulagðir eru sérafnotareitir íbúða á jarðhæðum. Settir verða upp 1m háir skjólveggir við sérafnotareiti samkvæmt teikningum lóðarhönnuðar.
Gróður og gras
Gengið er frá gróðri á lóð samkvæmt lóðarteikningu, engin trjágróður fylgir lóð.
Frágangur íbúða inni:
Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna. Útveggir og hluti innveggja eru steyptir og verða með sléttri áferð, málaðir hvítir/ljósir. Léttir innveggir eru hlaðnir á hefðbundinn hátt, svo spartlaðir, grunnaðir og málaðir í hvítum/ljósum lit. Veggir á baðherbergjum eru málaðir með háu gljástigi, flísalagt er á veggi við sturtu.
Gólf:
Íbúðir eru afhentar án gólfefna að undanskildu baði og anddyri. Gólf á baðherbergjum og forstofum eru lögð flísum. Öll gólf verða flotuð og tilbúin undir gólfefni. Tryggður verður vatnshalli á baðgólfi frá inngangshurð og í sturtubotn. Þau efni sem tilgreind eru hér að neðan eru til viðmiðunar eða sambærilegt frá öðrum birgja.
Veggir:
Allir veggir íbúðar eru sparslaðir og málaðir hvítir/ljósir. Veggir á baðherbergjum eru málaðir hvítir/ljósir að vali verkkaupa með háu gljástigi og flísalagt er á veggi í sturtusvæðum. Útveggir íbúðar eru einangraðir að utan, sparslaðir að innan og málaðir.
Loft:
Loft á 1 hæð eru sléttsandspörtluð, máluð með plastmálningu. Loft á baðherbergjum eru máluð með rakaþolnu málningarkerfi. Loft neðaná sperruþök eru klædd með Clipsó dúk.
Innihurðir:
Yfirfelldar hurðir, plastlagðar, hvítar.
Innréttingar:
Allar innréttingar eru úr melamin efni. Lamir, búnaður og skúffur er með mjúklokun. Almennt er miðað við innréttinga frá Ikea eða sambærilegt.
Eldhús:
Skápar í innréttinum eru Metod og hurðar eru hvítar ( eða standard lit ) Veddinge frá IKEA eða sambærilegt.
Niðurröðun skápa, tækja og vasks er samkvæmt teikningu arkitekta og útlitsteikningum frá innréttinga söluaðila. Hæð efri og neðri skápa skal vera sem næst 80cm Skúffa skal vera undir bakstursofni og skápur fyrir ofan viftu skal vera jafn djúpur og aðliggjandi skápar. Ísskápshólf er með þili beggja vegna ásamt toppi. Ruslaskápur verður útdreginn og með hólfum til flokkunar. Borðplötur eru plastlagðar með mattri áferð. Lamir, búnaður og skúffur er með mjúklokun. Sökklar eru hvítir ca 120 – 150 mm háir. Höldur eru úr burstuðu stáli.
Klæðaskápar hjóna:
Í hjónaherbergi er einn 150 x 58 x 236 cm hvítur Pax fataskápur eða sambærilegt, samsettur úr einni 100 cm breiðri einingu fyrir hangandi föt. Ofan við slá er hilla. Á skápnum eru tvær hurðir á lömum. Í 50 cm breiðri einingu eru 5 lausar hillur og ein hurð á lömum. Höldur eru Billsbro frá IKEA eða sambærilegar vörur.
Forstofa:
Gert er ráð fyrir fatahengi og skáp 1 – 1,2lm í forstofu, efni verði úr melamin með hurðum.
Innréttingar í barnaherbergi: Engar innréttingar eru í barnaherbergjum.
Sólbekkir: Engir sólbekkir verða í íbúðum.
Baðherbergi:
Innréttingar á baðherbergi eru vegghengdur skúffuskápur með vaski og blöndunartækja (samsetningarvara) Godmorgen/Odensvik vörunúmer 89884361 og spegill fyrir ofan Godmorgon vörunúmer 30149132 eða sambærilegar vörur
Rafmagn:
Rafmagn fullfrágengið með greinatöflu í hverri íbúð. Rafmagn er skv. teikningu. Sjónvarps- og nettenglar á tveimur stöðum í íbúð. Rofar og tenglar eru hvítir frá Gira eða sambærilegt.
Útiljós verða við inngang, útitengill og ljós á svölum. Tengill er fyrir uppþvottavél í öllum íbúðum.
Vinnu- og efnisgæði. Öll vinna og frágangur rafbúnaðar svo og rafbúnaður skal vera í einu og öllu í samræmi við Íslenskan staðal ÍST 200:2006, nýjustu útgáfu af Reglugerð um raforkuvirki (rur) og kafla 3 í fyrirsögn um vinnubrögð (fuv) í ákvæðisgrundvelli rafvirkja. Allt efni sem nota skal til brunalokana og brunavarna skal hafa gildandi viðurkenningu til þess af Mannvirkjastofnun.
Innlagnaefni
Dæmigert innlagnaefni væri GIRA standard eða sambærilegt, með hvítri glansáferð:
Raflýsing íbúða og sameigna
Raflýsing íbúða er í samræmi við ÍST 150:2009. Loftljós innandyra verða 9 x 25 cm SPÄCKA ljós frá IKEA, vörunúmer 60347395, þar sem staðall kveður á um frágengna lýsingu. Í öllum öðrum rýmum er pera í fatningu. Eða sambærilegt. Undirskápalýsing í eldhúsi er OMLOPP LED 60 W frá IKEA, 375 Lumen, vörunúmer 30245223. Eða sambærilegt
Eldhúsraftæki:
Eldhúsraftæki eru frá Amice, Electrolux, Ikea eða sambærileg. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu, sem fylgja ekki.
Búnaður:
Reykskynjarar fylgja uppsettir. Slökkvitæki fylgir hverri íbúð.
Hitalögn:
Hitalögn er hefðbundin. Húsið er upphitað með miðstöðvarofnum á hefðbundinn hátt með hitastýringu. Handklæðaofn á baði er 478 watta Roma/Lazzirini 60 x 123 cm frá Ísleifi Jónssyni, vörunúmer 45386358 eða sambærilegur.
Loftræsing
Vélræn loftræsing er í votrýmum íbúða ásamt geymslurýmum, samkvæmt reglugerð og teikningum loftræsihönnuðar. Vanda skal sérstaklega festingar og frágang loftræsiröra, fjaðrandi festingar á rörum og rör vafin eða skilin að með ull vegna hljóðkrafna og elds. Sjá nánar í frágangslýsingu fyrir lagnir og loftræsikerfi m.t.t. hljóðhönnunar frá Myrru sem er vistað inná verkefnisvef. Stýringar fyrir loftræsikerfi skulu staðsettar þannig að almenningur hafi ekki greiðan aðgang að þeim.
Í útvegg í opnum rýmum beint upp af ofnum er komið fyrir aðgengilegum ferskloftsventlum sem anda út að innri brún útveggjaklæðningar, ferskloftsventill verður útbúinn með filter að innan sem hægt er að endurnýja t.d. ULA frá Lindab eða sambærilegt. Setja skal ventla í lokuð anddyri og tæknirými. Í inntaksrými verður sett loftristar til kælingar.
Nánari staðsetning mun koma fram á loftræsiteikningum.
Teikningar/ tæknilegar útfærslur:
Í kaupsamningi kemur fram hvað teikningar arkitekts eru í gildi á þeim tíma þegar kaupsamningur er gerður. Á byggingartíma hússins áskilur byggingarfélagið sér rétt til að breyta þessum teikningum í samráði við arkitekt vegna tæknilegra útfærsla sem upp geta komið í framkvæmdinni. Teikningar annarra hönnuða geta líka breyst vegna tæknilegra útfærsla og eða breytinga vegna búnaðar sem síðar er valinn inn í eða utan á húsið.
Afhending íbúða:
Kaupandi og verksali taka út íbúðir í sameiningu við skil og sannreyna ástand íbúðarinnar. Ef gallar eða vanefndir koma í ljós skal verksali lagfæra galla við fyrsta tækifæri. Íbúðir eru þrifnar fyrir skil og afhendast hreinar.
Í öllum tilvikum þar sem minnst er á tegundir af hinum ýmsu tækjum og innréttingum í skilalýsingu þessari er átt við þau tæki eða sambærileg á þeim tíma sem uppsetning á sér stað. Sama á við um birgja/efnissala, seljandi áskilur sér rétt til breytinga þar á og verður þá miðað við sambærilega vöru.
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is
– eða skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – almennt kr. 50.000 – 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.