Marin er hér í vinnuheimsókn, en tilgangur ferðarinnar er meðal annars að ræða umsókn Finna um aðild að Atlantshafsbandalaginu og öryggismál í Evrópu. Meðal viðburða var spjall þeirra Katrínar í Þjóðminjasafninu, sem var haldið á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
Mikilvægt að fá konur í valdastöður
Í upphafi var Sanna spurð um mikilvægi þess að konur gegni valdastöðum í samfélaginu. Hún segir það skipta miklu máli. Mikil þörf sé á fleiri konum í valdastöður – í Evrópu séu einungis nokkrar konur í æðstu stöðum stjórna landa sinna. Hún telur Norðurlöndin leiðandi afl í þessum efnum. Þá skipti einnig miklu máli að fá ungt fólk og fólk með ólíkan bakgrunn í stjórnunarstöður.
Katrín tekur undir með Sönnu. Hún segir það skipta miklu máli að raddir fólks með fjölbreyttan bakgrunn og ólíka reynslu heyrist.
Sanna bendir á þá ógn sem stafi af stafrænni áreitni og hatursorðræðu, sem dæmi. Þarna geti þjóðirnar tvær miðlað reynslu á milli sín. Stjórnvöld landanna geti rætt hvað hafi gengið vel þeirra megin og bæði gefið og fengið ráðleggingar. „Þetta eru risastór málefni í dag. Við getum lært hvert af öðru og unnið saman að lausnum við þeim vandamálum sem nú blasa við okkur.“
Innrás Rússa breytti veruleika Finna
Katrín segir það sameina Norðurlöndin að þau séu opin lýðræðisríki. Það sé jafnvel mikilvægara nú en nokkurn tíma áður. „Við búum við opnar rökræður og erum með sterk þjóðþing í samfélögum okkar. Þetta er ekki síst mikilvægt vegna þess að við erum að sjá ákveðið lýðræðislegt bakslag. Ekki einungis í fjarlægum löndum, heldur í Evrópu líka. Þessi styrkur Norðurlandanna er því mikilvægari en nokkru sinni fyrr.“
Löndin séu einnig náin hvað varðar sögu og menningu. Þær Sanna eru sammála um að Íslendingar og Finnar geti lært mikið hver af öðrum.
Sanna segist telja að Norðurlöndin hafi mikið af sömu gildum. „Þið eruð auðvitað ekki hluti af Evrópusambandinu – en þið eruð alltaf velkomin,“ segir hún. Katrín hlær og segir Sönnu ítrekað benda á þetta.
Sanna segir Finnland nú bíða þess að vera samþykkt inn í Atlantshafsbandalagið. Hún telur þjóðina geta lagt mikið að mörkum til bandalagsins. Hún segir heimsmyndina hafa breyst eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu og að nú sé mikilvægt að Norðurlöndin standi saman, sem og Atlantshafsbandalagið í heild.
Katrín segist hafa orðið þess áskynja í Finnlandi að íbúar landsins upplifðu nýjan og ógnvænlegan raunveruleika eftir að stríðið hófst. Fólk hafi sagt henni að innrásin í Úkraínu hafi breytt öllu fyrir Finna. Sanna tekur undir þetta.